Tilkynning um útboð ríkisbréfa – skiptiútboð – RIKB 22 1026

Á útboðsdegi, milli kl. 13:30 og 14:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokki, með því ISIN númeri og með þeim gjalddaga sem fram kemur í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag.Andvirði uppkaupsbréfanna ásamt áföllnum vöxtum og verðbótum kemur sem greiðsla fyrir kaupum á nýjum bréfum.Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKB 21 0805Ath. að ekki er tekið við greiðslu í reiðufé. Eingöngu má greiða fyrir flokkinn með uppkaupsflokkinum á uppkaupsverði.Til nánari upplýsinga er að öðru leyti vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.