Skip to main content

Landsbankinn hf.: Uppgjör Landsbankans fyrir árið 2020

Hagnaður Landsbankans á árinu 2020 nam 10,5 milljörðum króna, eftir skatta.Arðsemi eiginfjár Landsbankans var 4,3% á árinu 2020, samanborið við 7,5% arðsemi árið 2019. Markmið bankans er að ná að lágmarki 10% arðsemi eiginfjár.Arðsemi eiginfjár á fjórða ársfjórðungi 2020 var 15,5%, samanborið við 6,3% arðsemi á sama ársfjórðungi árið á undan.Kostnaður sem hlutfall af tekjum (K/T) hækkaði á milli ára og var 47,4% á árinu 2020 samanborið við 42,6% árið 2019.Útlán Landsbankans jukust um 133,2 milljarða króna. Vanskilahlutfall útlána í árslok 2020 var 0,8% sem er sama hlutfall og í árslok 2019.Eigið fé Landsbankans nam 258,3 milljörðum króna í árslok 2020 og eiginfjárhlutfallið var 25,1% af áhættugrunni.Lagt verður til við aðalfund að greiddur verði 4,5 milljarða króna arður til hluthafa vegna ársins 2020, eða sem nemur 0,19 krónu á hlut.Árs- og sjálfbærniskýrsla Landsbankans og Pillar III áhættuskýrsla fyrir árið 2020 koma út samhliða birtingu ársuppgjörsins.Hagnaður Landsbankans hf. á árinu 2020 nam 10,5 milljörðum króna eftir skatta, samanborið við 18,2 milljarða króna á árinu 2019. Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 4,3% á árinu 2020, samanborið við 7,5% arðsemi árið áður. Hreinar vaxtatekjur námu 38,1 milljarði króna árið 2020 samanborið við 39,7 milljarða króna árið á undan. Hreinar þjónustutekjur Landsbankans námu 7,6 milljörðum króna árið 2020 samanborið við 8,2 milljarða króna á árinu 2019. Aðrar rekstrartekjur voru neikvæðar um 7,5 milljarða króna samanborið við 3,6 milljarða króna á árinu 2019. Lækkunin skýrist einkum af 12 milljarða króna virðisrýrnun fjáreigna samanborið við virðisrýrnun upp á 4,8 milljarða króna árið 2019. Aukna virðisrýrnun fjáreigna má rekja til áhrifa heimsfaraldurs Covid-19.Heildarvanskil fyrirtækja og heimila stóðu í stað á milli ára og voru 0,8% af útlánum. Vegna tímabundinna sértækra Covid-19 úrræða mælast 90 daga vanskil minni en ella.Rekstrartekjur bankans á árinu 2020 námu 38,3 milljörðum króna samanborið við 51,5 milljarða króna árið áður. Vaxtamunur í hlutfalli af meðalstöðu eigna og skulda nam 2,5% en var 2,8% árið áður.Rekstrarkostnaður var 25,6 milljarðar króna á árinu 2020 samanborið við 28,2 milljarða króna á árinu 2019. Þar af voru laun og launa­tengd gjöld 14,8 milljarðar króna, samanborið við 14,5 milljarða króna árið áður. Annar rekstrarkostnaður var 9,1 milljarður króna á árinu 2020 samanborið við 9,5 milljarða króna árið 2019.Hagnaður fyrir skatta á árinu 2020 var 12,6 milljarðar króna samanborið við 23,3 milljarða króna árið 2019. Reikn­aðir skattar, þar með talið sérstakur fjársýsluskattur á laun, voru 4,6 milljarðar króna árið 2020 samanborið við 10 milljarða króna árið 2019.Heildareignir Landsbankans jukust um 137,8 milljarða króna á milli ára og námu í árslok 2020 alls 1.564 millj­örðum króna. Útlán jukust um 12% milli ára, eða um 133 milljarða króna. Útlánaaukning ársins er aðallega vegna lána til einstaklinga. Í árslok 2020 voru innlán frá viðskiptavinum 793 milljarðar króna, samanborið við 708 milljarða króna í árslok 2019.Eigið fé Landsbankans í árslok 2020 var 258,3 milljarðar króna samanborið við 247,7 milljarða króna í árslok 2019. Enginn arður var greiddur til hluthafa á árinu 2020. Eiginfjárhlutfall Landsbankans í árslok 2020 var 25,1%, samanborið við 25,8% í árslok 2019. Fjármálaeftirlitið gerir 18,8% heildarkröfu um eiginfjárgrunn Landsbankans.Bankaráð mun leggja til við aðalfund þann 24. mars 2021 að greiddur verði arður til hluthafa vegna ársins 2020 sem nemur 0,19 krónu á hlut, eða samtals 4,5 milljörðum króna. Arðgreiðslan samsvarar 43% af hagnaði samstæðunnar á árinu 2020Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans segir:„Uppgjörið fyrir árið 2020 er til marks um traustan, skilvirkan og stöðugan rekstur bankans. Hagnaður bankans á árinu 2020 nam 10,5 milljörðum króna, arðsemin var 4,3% fyrir árið í heild og góð afkoma var af allri starfsemi bankans. Árangurinn er góður, sérstaklega ef haft er í huga að á árinu gjaldfærði bankinn um 12 milljarða króna vegna virðisbreytinga útlána en stór hluti af þeirri gjaldfærslu er vegna möguleika á útlánatöpum sem ekki hafa raungerst. Þetta uppgjör sýnir að bankinn er í sterkri stöðu til að styðja vel við viðspyrnu efnahagslífsins en einnig þá sem hafa orðið fyrir miklu tekjufalli vegna heimsfaraldursins.Áhersla á hagvæmni í rekstri heldur kostnaði stöðugum milli ára. Hlutfall kostnaðar af tekjum breytist lítið en það var 47,7% á árinu 2020. Rekstrarkostnaður stóð nánast í stað, líkt og verið hefur um árabil. Á sama tíma er mikil fjárfesting í stafrænni þróun.  Á síðustu þremur árum hefur bankinn kynnt um 40 nýjungar í stafrænni þjónustu fyrir viðskiptavinum.Landsbankinn hefur aldrei lánað meira til íbúðakaupa eða endurfjármögnunar íbúðalána. Bankinn lækkaði vexti sex sinnum og þrátt fyrir miklar áskoranir vegna heimsfaraldursins gátum við mætt verulega aukinni eftirspurn eftir íbúðalánum og tryggt viðskiptavinum mjög góð og samkeppnishæf kjör. Við veittum rúmlega 10.000 einstaklingum og fjölskyldum íbúðarlán og hlutdeild bankans á íbúðalánamarkaði jókst í 26,3%.Ég er fyrst og fremst þakklát fyrir tryggð viðskiptavina á ári þar sem öllum áætlunum var kollvarpað. Við veitum viðskiptavinum um land allt fjármálaþjónustu og þar af um 700 fyrirtækjum í ferðaþjónustu. Við höfum stutt við viðskiptavini okkar og veitt þeim úrræði og aðstoð og vonumst öll til þess að með haustinu horfi til betri vegar. Starfsfólk bankans hefur staðið sig afburðavel, er úrræðagott og hefur sýnt mikla aðlögunarhæfni. Með góðu starfsfólki og vegna öflugrar stafrænnar þróunar gátum við boðið nánast óskerta þjónustu. Viðskiptavinir brugðust vel við breyttum aðstæðum, voru fljótir að tileinka sér nýjungar og fundu að Landsbankinn var til staðar.Á árinu 2021 vinnur Landsbankinn eftir nýrri stefnu, Landsbanki nýrra tíma. Stefnan fjallar um hvernig bankinn þróast í sífellu og nýtir stafræna tækni til að veita framúrskarandi fjármálaþjónustu með mannlegri nálgun. Við ætlum að einfalda viðskiptavinum lífið. Við hefjum árið með útgáfu nýrrar sjálfbærrar fjármálaumgjarðar og ætlum okkur áfram leiðandi hlutverk á sviði sjálfbærni. Það er Landsbanki nýrra tíma.“Símafundur vegna uppgjörsFöstudaginn 12. febrúar kl. 10.00 mun bankinn bjóða upp á símafund á ensku þar sem farið verður yfir uppgjör bankans vegna ársins 2020. Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með því að senda tölvupóst á netfangið fjárfestatengsl@landsbankinn.is.Fjárhagsdagatal LandsbankansAðalfundur 24. mars 2021Uppgjör 1F 2021  6. maí 2021Uppgjör 2F 2021 22. júlí 2021Uppgjör 3F 2021 28. október 2021Ársuppgjör 2021 3. febrúar 2022 Nánari upplýsingar veita:               Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi, samskipti@landsbankinn.is Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, fjarfestatengsl@landsbankinn.isViðhengiLandsbankinn ársreikningur samstæðu 2020Fréttatilkynning Landsbankinn fjárhagsárið 2020Pillar III risk report 2020Uppgjörskynning Landsbankinn fjárhagsárið 2020

Disclaimer & Cookie Notice

Welcome to GOLDEA services for Professionals

Before you continue, please confirm the following:

Professional advisers only

I am a professional adviser and would like to visit the GOLDEA CAPITAL for Professionals website.

Important Notice for Investors:

The services and products offered by Goldalea Capital Ltd. are intended exclusively for professional market participants as defined by applicable laws and regulations. This typically includes institutional investors, qualified investors, and high-net-worth individuals who have sufficient knowledge, experience, resources, and independence to assess the risks of trading on their own.

No Investment Advice:

The information, analyses, and market data provided are for general information purposes only and do not constitute individual investment advice. They should not be construed as a basis for investment decisions and do not take into account the specific investment objectives, financial situation, or individual needs of any recipient.

High Risks:

Trading in financial instruments is associated with significant risks and may result in the complete loss of the invested capital. Goldalea Capital Ltd. accepts no liability for losses incurred as a result of the use of the information provided or the execution of transactions.

Sole Responsibility:

The decision to invest or not to invest is solely the responsibility of the investor. Investors should obtain comprehensive information about the risks involved before making any investment decision and, if necessary, seek independent advice.

No Guarantees:

Goldalea Capital Ltd. makes no warranties or representations as to the accuracy, completeness, or timeliness of the information provided. Markets are subject to constant change, and past performance is not a reliable indicator of future results.

Regional Restrictions:

The services offered by Goldalea Capital Ltd. may not be available to all persons or in all countries. It is the responsibility of the investor to ensure that they are authorized to use the services offered.

Please note: This disclaimer is for general information purposes only and does not replace individual legal or tax advice.