Islandsbanki hf.: Birting á skýrslum ársins 2020

Íslandsbanki hefur gefið út árs- og sjálfbærniskýrslu, áhættuskýrslu (Pillar 3) og áhrifaskýrslu fyrir sjálfbæran fjármálaramma bankans fyrir árið 2020. Árs- og sjálfbærniskýrsla Skýrslan gefur greinargóða mynd af starfsemi, rekstri og stefnu bankans á árinu 2020. Skýrslan er á íslensku og ensku. Áhættuskýrsla (Pillar 3) Markmið áhættuskýrslu er að uppfylla lögbundnar kröfur um upplýsingagjöf og veita markaðsaðilum og öðrum áhugasömum aðilum upplýsingar sem ætlað er að auka skilning á áhættustýringu bankans. Skýrslan er á ensku. Áhrifaskýrsla fyrir sjálfbæran fjármálaramma Áhrifaskýrslan veitir yfirlit yfir þau lán og fjárfestingar í eignasafni bankans sem uppfylla skilyrði sjálfbæra fjármálarammans og hafa verið flokkuð sem sjálfbær verkefni á þeim þremur mánuðum sem eru liðnir frá útgáfu sjálfbæra fjármálarammans. Þá er í skýrslunni að finna áhrifamælikvarða og áætluð jákvæð umhverfis- og samfélagsáhrif sem stafa af verkefnunum. Skýrslan er á ensku. Hægt er að nálgast ofangreindar skýrslur, ásamt fjárhagsupplýsingum fyrir árið 2020 á ársskýrsluvef bankans. Nánari upplýsingar veita Fjárfestatengsl, ir@islandsbanki.is. Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlega skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/is/grein/postlisti_ir Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er leiðandi fjármálafyrirtæki á Íslandi með djúpstæðar rætur í íslenskri atvinnusögu sem nær yfir 145 ár. Markaðshlutdeild bankans er á bilinu 25-40% á innanlandsmarkaði. Með hlutverkið „saman erum við hreyfiafl til góðra verka svo að þú náir árangri” og framtíðarsýnina að vera #1 í þjónustu að leiðarljósi vinna þrjú viðskiptasvið þétt saman til þess að tryggja góð sambönd við viðskiptavini bankans. Til að koma enn betur til móts við síbreytilegar þarfir viðskiptavina hefur Íslandsbanki þróað margvíslegar stafrænar lausnir svo sem app Íslandsbanka og Kass. Á sama tíma rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið með 12 útibú staðsett á lykilstöðum um land allt. Íslandsbanki hefur BBB/A-2 lánshæfismat frá S&P Global Ratings. www.islandsbanki.is Fyrirvari
Framangreind fréttatilkynning gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki seinna meir á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari fréttatilkynningu þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út. Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.
