Eik fasteignafélag hf.: Tilnefningarnefnd auglýsir eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar

Tilnefningarnefnd Eikar fasteignafélags hf. auglýsir eftir tillögum hluthafa að frambjóðendum til stjórnarkjörs sem og framboðum annarra til stjórnar félagsins vegna aðalfundar hluthafa sem stendur til að halda 25. mars 2021.Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðublaði sem tilnefningarnefnd félagsins lætur í té og unnt er að nálgast á heimasíðu félagsins https://www.eik.is/hluthafar/.Tillögur hluthafa og framboð skulu send á netfangið tilnefningarnefnd@eik.is eða í lokuðu umslagi á skrifstofu félagsins, eigi síðar en 4. febrúar 2021. Nefndin mun ekki leggja mat á tillögur eða framboð sem berast eftir tímamarkið.Rökstudd tillaga nefndarinnar skal kynnt með fundarboði aðalfundar og vera aðgengileg hluthöfum á heimasíðu félagsins a.m.k. þremur vikum fyrir aðalfund. Starfsemi tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimildir til þess að skila inn framboðum til stjórnar minnst 7 sólarhringum fyrir aðalfund í samræmi við 3. mgr. 20. gr. samþykkta félagsins.