Félagsbústaðir hf. – Fjárhagsáætlun 2021

Stjórn Félagsbústaða hf. samþykkti á fundi sínum 17. desember 2020 fjárhagsáætlun félagsins fyrir árið 2021. Fjárhagsáætlunin byggir á útgönguspá fyrir árið 2020.Helstu atriði í fjárhagsætlun fyrir árið 2021 eru:Áætlað er að rekstrarniðurstaða ársins 2021 verði jákvæð um 1.044 m.kr.Áætlað er að rekstrartekjur nemi 5.059 m.kr.Áætlað er að rekstrargjöld nemi 2.781 m.kr.Áætlað er að greiðslubyrði lána nemi 2.280 m.kr.Áætlað er að handbært fé í lok árs nemi 1.189 m.kr.Rekstur félagsins er sjálfbær á tímabilinu og handbært fé frá rekstri nægir til að greiða afborganir af núverandi og nýjum skuldum félagsins.Áætlað er að eiginfjárhlutfall verði 46,2% í lok árs.Áætlað er að íbúðum félagsins fjölgi um 123.Áætlað er að fjárfestingakostnaður nemi 5.598 m.kr.Áætlað er að 34% fjárfestingakostnaðar verði aflað með stofnframlögum og 66% með lánsfé.Stefnt er að áframhaldandi útgáfu félaglegra skuldabréfa til að standa undir fjárfestingakostnaði.Keyptar verða íbúðir í nýbyggingum í kjölfar kaupréttarsamninga, á almennum fasteignamarkaði og byggðir íbúðakjarnar.Meðfylgjandi er áætlun ársins 2021.Nánari upplýsingar veitir:Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri, sigrun@felagsbustadir.is sími 520-1500ViðhengiFjárhagsáætlun Félagsbústaða 2021