Reginn hf.: Stækkun á skuldabréfaflokknum REGINN280130

Reginn hf. hefur nú lokið stækkun á skuldabréfaflokknum REGINN280130. Flokkurinn er verðtryggður og tryggður með almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins.Seld voru skuldabréf að nafnverði 3.900 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,30% og verður heildarstærð flokksins því í kjölfar stækkunar að nafnverði 6.420 m.kr.Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna þriðjudaginn 15. desember næstkomandi og óskað verður eftir töku skuldabréfanna til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í kjölfarið.Tilgangur útgáfunnar er að endurfjármagna eldri bankalán félagsins.Íslandsbanki hafði umsjón með viðskiptunum og stækkun skuldabréfaflokksins.
Nánari upplýsingar veita:Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262Jóhann Sigurjónsson – Fjármálastjóri – johann@reginn.is – S: 512 8900 / 859 9800