Miklar fjárfestingar hjá OR og dótturfyrirtækjum

Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur hefur verið stöðugur fyrstu þrjá fjórðunga ársins 2020, fyrirtækið er vel í stakk búið til að flýta og auka þannig við fjárfestingar til að mæta afleiðingum heimsfaraldurs á íslenskt efnahagslíf. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 11,2 milljörðum króna en var 11,1 milljarður á sama tímabili í fyrra og framlegð rekstursins var 20,8 milljarðar eða 800 milljónum króna meiri en í uppgjöri eftir þriðja ársfjórðung 2019.
Árshlutareikningur fyrstu níu mánaða ársins var samþykktur á fundi stjórnar OR í dag. Reikningurinn er uppgjör allrar samstæðunnar, sem auk móðurfélagsins telur Veitur, Orku náttúrunnar, Gagnaveitu Reykjavíkur og Carbfix.Miklar fjárfestingar – sterk sjóðstaða
Í takti við uppbyggingu á helstu þjónustusvæðum fyrirtækisins og ákvörðun um viðspyrnufjárfestingar vegna kórónuveirunnar, voru fjárfestingar með mesta móti á fyrstu þremur fjórðungum ársins og námu 11,4 milljörðum króna. Helstu fjárfestingar tímabilsins tengjast uppbyggingu og viðhaldi veitukerfanna – vatnsveitu, fráveitu, hitaveitu og rafveitu – fjárfestingu í nýjum borholum á Hengilssvæðinu ásamt tengingu heimila í Árborg og Reykjanesbæ við ljósleiðara. Þá er mikill kraftur í viðskiptaþróun Carbfix.Framkvæmdirnar eru fjármagnaðar með framlegð rekstursins og lántöku. Á dögunum greiddi OR upp lán sem eigendur fyrirtækisins veittu því á harðindaárunum eftir hrun og verið er að ganga frá láni hjá Norræna fjárfestingarbankanum upp á 80 milljónir Bandaríkjadala til 15 ára. Það fé fæst á mun hagstæðari kjörum en eigendalánið var og nýtist meðal annars til fjármögnunar á áðurnefndum verkefnum, sem öll eru umhverfisvæn.Þrátt fyrir stöðugleika í rekstrarafkomu sýnir árshlutauppgjörið talsverðar breytingar á fjármagnsliðum. Þær má rekja að stærstum hluta til lækkandi álverðs frá byrjun ársins. Verð fyrir rafmagn, sem selt er Norðuráli, tengist álverði í löngum sölusamningum. Verðlækkunin á tímabilinu er reiknuð út allan samningstímann og færð í rekstrarreikning samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum. Áhrif þessa á heildarafkomu OR á fyrstu níu mánuðum þessa árs voru mikil, eða liðlega 2,8 milljarðar króna. Neikvæð áhrif gengis á rekstur eru um 4,6 milljarðar. Á móti kemur jákvæð færsla á eigin fé um 7,4 milljarða vegna áhrifa gengis á efnahag. Þessar færslur hafa ekki áhrif á rekstrarhagnað, sjóðstöðu eða getu fyrirtækisins til fjárfestinga en hafa áhrif á reiknaða heildarniðurstöðu árshlutauppgjörsins. Hún er nú jákvæð um 0,7 milljarða króna en var á sama tímabili árið 2019 jákvæð um 4,4 milljarða króna.Bjarni Bjarnason, forstjóri
„Það siglir enginn rekstur lygnan sjó í kófinu. Við okkur blasa sífellt ný viðfangsefni tengd heimsfaraldrinum. Við bregðumst skjótt við en grípum líka þau tækifæri sem skapast til að bæta og efla starfsemina. Tiltölulega hagstætt er að ráðast í fjárfestingar um þessar mundir; tilboð eru gjarnan lægri en á þenslutímum og fjármögnun fæst á góðum kjörum.
Við ákváðum strax í fyrravetur að ráðast í sérstakar viðspyrnufjárfestingar vegna kórónuveirunnar. Viðhaldsfjárfestingar og efling og stækkun veitukerfanna eru veigamestar í ár en nú fer líka að líða að framkvæmd í einu stærsta fjárfestingaverkefni okkar um hríð; uppfærslu á 160.000 orkumælum sem eru á heimilum og hjá fyrirtækjunum á veitusvæðum okkar en gömlu mælunum verður skipt út fyrir svokallaða snjallmæla. Útskiptin eru stórt skref inn í framtíðina sem við hlökkum til að móta með viðskiptavinum okkar.Við vorum vel undir kórónuveiruna búin með viðbragðsáætlanir og starfsfólk hefur sýnt mikla ábyrgð og virðingu fyrir mikilvægi þjónustunnar í samskiptum við viðskiptavini og sín á milli. Þannig höfum við komið í veg fyrir að faraldurinn i bitnaði á þeirri mikilvægu grunnþjónustu sem Veitur, Orka náttúrunnar og Ljósleiðarinn veita.“Rekstraryfirlit og helstu kennitölur
Lykiltölur fjármála
Fleiri lykiltölur fjármála OR-samstæðunnar eru birtar á vef Orkuveitu Reykjavíkur ásamt fjárhagslegum markmiðum sem unnið er eftir.Slóðin er https://www.or.is/fjarmal/fjarmalafrettir/lykiltolur-fjarmala
Nánari upplýsingar:
Ingvar Stefánsson
Framkvæmdastjóri fjármála OR
Sími: 617 6301
ViðhengiOR Samstæða 30.9.2020 undirritað