Eimskip: Auglýsing vegna yfirtökutilboðs Samherja Holding ehf. til hluthafa Eimskipafélags Íslands hf.

Samherji Holding ehf. birti auglýsingu í fjölmiðlum í dag, þann 5. nóvember 2020, þar sem boðað var að tilboðsyfirlit vegna yfirtökutilboðs Samherja Holding ehf. til hluthafa Eimskipafélags Íslands hf. yrði birt þriðjudaginn 10. nóvember 2020. Auglýsinguna má finna í viðhengi.Þegar búið er að birta tilboðsyfirlitið mun stjórn Eimskipafélags Íslands hf. semja og gera opinbera sérstaka greinargerð í samræmi við 104. gr. laga nr. 108/2007, um verðbréfaviðskipti.ViðhengiAuglýsing til fjölmiðla