Festi hf.: Endurkaup vika 42

Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 4. október 2020 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa á hámarki 4.000.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,2% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 600 milljónum króna að kaupverði.Fyrir kaupin átti Festi 5.645.407 hluti eða 1,70 % af útgefnu hlutafé. Festi á í dag 7.045.407 hluti sem samsvarar 2,12 % af hlutafé félagsins.Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka II við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.Nánari upplýsingar veitir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi hf., (eggert@festi.is) og Magnús Kr. Ingason, fjármálstjóri Festi hf. (mki@festi.is).