REITIR: Horfur rekstrar ársins 2020 og fyrstu drög áætlunar fyrir árið 2021

Reitir hafa endurmetið afkomuspá félagsins fyrir árið 2020. Áætlað er nú að tekjur ársins verði á bilinu 10.700 – 10.850 millj. kr. og að rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu verði 6.650 – 6.800 millj. kr.Fyrri horfur Reita um afkomu voru að tekjur ársins yrðu á bilinu 11.500 – 11.650 millj. kr. og að rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu yrði 7.600 – 7.750 millj. kr.Það er mat stjórnenda að umfang tapaðra tekna vegna Covid-19 faraldursins hafi numið 291 millj. kr. á þriðja ársfjórðungi samanborið við 315 millj. kr. á öðrum ársfjórðungi. Áfram er gert ráð fyrir gjaldfærslu tapaðra tekna þegar þær falla til líkt og gert var á öðrum ársfjórðungi. Lang stærstur hluti áætlaðra tapaðra tekna vegna Covid-19 hjá félaginu er vegna hótela og gististaða. Nýtingarhlutfall fjórðungsins var rétt um 95% sem er betri nýting en á bæði fyrsta og öðrum ársfjórðungi.Áætlað er að rekstrarafkoma þriðja ársfjórðungs verði á bilinu 1.560 – 1.590 millj. kr. og líklegt er að afkoma á fjórða ársfjórðungi verði sambærileg.Fyrstu drög að rekstraráætlun fyrir árið 2021 gera ráð fyrir um 5% hækkun tekna frá fyrra ári og rekstrahagnaði fyrir matsbreytingu á bilinu 7.050 – 7.250 millj. kr.Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is