Skip to main content

Kvika banki hf.: Eignastýringarstarfsemi Kviku sameinast í einu félagi, Kviku eignastýringu hf.

Eitt stærsta eigna- og sjóðastýringarfyrirtæki landsins.
Síðustu misseri hefur verið unnið að því að endurskipuleggja eigna- og sjóðastýringarstarfsemi samstæðu Kviku banka hf., kt. 540502-2930, Katrínartúni 2, 105 Reykjavík (hér eftir „Kvika“ eða „bankinn“) eins og tilkynnt hefur verið um í tilkynningum bankans annars vegar þann 2. september 2019 og hins vegar þann 30. september 2019.Í þeim tilkynningum kom fram að stjórn bankans hefði samþykkt að sameina ætti eigna- og sjóðastýringarstarfsemi Kviku í einu dótturfélagi, þ.e. Júpíter rekstrarfélagi hf., kt. 520506-1010 (hér eftir „Júpíter“). Kvika og Júpíter sendu í sameiningu þann 13. nóvember 2019 beiðni til Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (hér eftir „FME“) þar sem óskað var eftir heimild fyrir því að færa eignastýringarstarfsemi Kviku yfir til Júpíters. Jafnframt skilaði Júpíter þann 11. júní 2020 inn umsókn til FME um starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða samkvæmt lögum nr. 45/2020.Í dag samþykkti FME beiðni Kviku og Júpíters um flutning á starfsemi eignastýringar Kviku samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki frá Kviku yfir til Júpíters og veitti Júpíter starfsleyfi til að gerast rekstraraðili sérhæfðra sjóða í samræmi við ákvæði laga nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Samhliða þessum breytingum er fyrirhugað að breyta nafni félagsins úr Júpíter rekstrarfélag hf. í Kvika eignastýring hf. Þeir starfsmenn sem störfuðu hjá Kviku við eignastýringu munu flytjast yfir til Kviku eignastýringar hf. sem og þau verkefni sem mynduðu starfsemi eignastýringar Kviku.Í kjölfar þessara breytinga verður Kvika eignastýring hf. eitt stærsta eigna- og sjóðastýringarfyrirtæki landsins. Kvika eignastýring hf. mun leggja áherslu á að veita viðskiptavinum breitt þjónustuframboð til þess að fjárfesta innanlands sem og á erlendum mörkuðum. Áhersla verður lögð á að vera leiðandi í eigna- og sjóðastýringu með langtímahagsmuni viðskiptavina að leiðarljósi. Félagið mun starfrækja úrval skuldabréfa-, lausafjár- og hlutabréfasjóða sem eru rafrænt skráðir og opnir almenningi til fjárfestingar. Félagið mun einnig reka blandaða og sérhæfða sjóði.Kvika eignastýring hf. mun starfa með leyfi FME sem rekstrarfélag verðbréfasjóða skv. heimild í lögum nr. 128/2011 og sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða samkvæmt lögum nr. 45/2020. Starfsleyfi félagsins samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki tekur einnig til eignastýringar, fjárfestingarráðgjafar, vörslu og umsýslu hlutdeildarskírteina og hluta sjóða um sameiginlega fjárfestingu og móttöku og miðlunar fyrirmæla varðandi fjármálagerninga. Vörslufyrirtæki félagsins er Kvika.Nánari upplýsingar veita:Marinó Örn Tryggvason, forstjóri Kviku banka hf. í síma 540-3200 eða marino.tryggvason@kvika.is.Hannes Frímann Hrólfsson, framkvæmdastjóri Júpíters rekstrarfélags hf. í síma 522-0010 eða hannes.hrolfsson@jupiter.is.

Disclaimer & Cookie Notice

Welcome to GOLDEA services for Professionals

Before you continue, please confirm the following:

Professional advisers only

I am a professional adviser and would like to visit the GOLDEA CAPITAL for Professionals website.

Important Notice for Investors:

The services and products offered by Goldalea Capital Ltd. are intended exclusively for professional market participants as defined by applicable laws and regulations. This typically includes institutional investors, qualified investors, and high-net-worth individuals who have sufficient knowledge, experience, resources, and independence to assess the risks of trading on their own.

No Investment Advice:

The information, analyses, and market data provided are for general information purposes only and do not constitute individual investment advice. They should not be construed as a basis for investment decisions and do not take into account the specific investment objectives, financial situation, or individual needs of any recipient.

High Risks:

Trading in financial instruments is associated with significant risks and may result in the complete loss of the invested capital. Goldalea Capital Ltd. accepts no liability for losses incurred as a result of the use of the information provided or the execution of transactions.

Sole Responsibility:

The decision to invest or not to invest is solely the responsibility of the investor. Investors should obtain comprehensive information about the risks involved before making any investment decision and, if necessary, seek independent advice.

No Guarantees:

Goldalea Capital Ltd. makes no warranties or representations as to the accuracy, completeness, or timeliness of the information provided. Markets are subject to constant change, and past performance is not a reliable indicator of future results.

Regional Restrictions:

The services offered by Goldalea Capital Ltd. may not be available to all persons or in all countries. It is the responsibility of the investor to ensure that they are authorized to use the services offered.

Please note: This disclaimer is for general information purposes only and does not replace individual legal or tax advice.