Skip to main content

Eik fasteignafélag hf.: Árshlutauppgjör fyrstu sex mánuði ársins 2020

Rekstrartekjur námu 4.184 m.kr.Virðisrýrnun viðskiptakrafna nam 181 m.kr.Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 2.494 m.kr.Heildartap nam 592 m.kr.Handbært fé frá rekstri nam 1.191 m.kr.Bókfært virði fjárfestingareigna nam 95.933 m.kr.  Bókfært virði eigna til eigin nota nam 3.793 m.kr. í lok tímabilsins.Matsbreyting fjárfestingareigna var neikvæð um 815 m.kr.Handbært fé nam 2.599 m.kr.Vaxtaberandi skuldir námu 61.157 m.kr. í lok tímabilsins.Eiginfjárhlutfall nam 30,9%.Tap á hlut var 0,13 kr.Vegnir verðtryggðir vextir námu 3,52% í lok tímabilsins.          Árshlutareikningur Eikar fasteignafélags hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2020 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins þann 27. ágúst 2020. Árshlutareikningurinn var kannaður af endurskoðanda félagsins, KPMG ehf.Meðfylgjandi er árshlutaskýrsla sem inniheldur árshlutareikning vegna fyrstu sex mánaða ársins ásamt ítarlegri upplýsingum um rekstur félagsins en fram koma í tilkynningunni. Staðfesting endurskoðanda á útreikningum útgefanda EIK 15 1 á skilmálum skuldabréfaflokksins eru einnig meðfylgjandi tilkynningu þessari. Samkvæmt staðfestingu endurskoðanda stóðust allir skilmálar skuldabréfaflokksins EIK 15 1 miðað við dagsetninguna 30.6.2020. PwC, eftirlitsaðili skuldabréfaflokkanna EIK 100346, EIK 161047, EIK 050726 og EIK 050749 staðfestir að flokkarnir standist öll fjárhagsleg- og tryggingarleg skilyrði skuldabréfaflokkanna miðað við dagsetninguna 30.6.2020 og eru staðfestingarnar meðfylgjandi tilkynningu þessari.Rekstur félagsinsRekstur félagsins gekk vel á fyrstu sex mánuðum ársins 2020 miðað við aðstæður og var afkoman í takti við uppfærðar áætlanir stjórnenda félagsins. Rekstrartekjur félagsins á fyrstu sex mánuðum ársins 2020 námu 4.184 m.kr. Þar af voru leigutekjur 3.743 m.kr. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 2.494 m.kr. Tap fyrir tekjuskatt nam 549 m.kr. og tap samstæðunnar á fyrstu sex mánuðum ársins 2020 nam 439 m.kr. Heildartap samstæðunnar nam 592 m.kr. samkvæmt yfirliti um heildarafkomu.Þann 25. mars sl. birti félagið tilkynningu í Kauphöll Íslands þess efnis að afkomuspá fyrir árið 2020 hefði verið felld úr gildi sökum óvissu um efnahagsleg áhrif COVID-19 faraldursins en birti uppfærðar horfur 5. júní 2020.NOI hlutfall (þ.e. rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir sem hlutfall af leigutekjum) nam 67,7% á fyrstu sex mánuðum ársins 2020 samanborið við 72,8% fyrir sama tímabil 2019.Fjárfestingareignir félagsins eru metnar á gangvirði í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) og stuðst er m.a. við núvirt framtíðarsjóðstreymi einstakra eigna. Breytingar á gangvirði eru færðar undir matsbreytingu fjárfestingareigna sem voru neikvæðar um 815 m.kr. á fyrstu sex mánuðum ársins.Efnahagur félagsinsHeildareignir félagsins námu 103.376 m.kr. þann 30. júní 2020. Þar af eru fjárfestingareignir að virði 95.933 m.kr. sem skiptast í fasteignir í útleigu að fjárhæð 93.305 m.kr., leigueignir (nýtingarréttur lóða) 2.092 m.kr., fasteignir í þróun 75 m.kr., byggingarréttir og lóðir 448 m.kr. og fyrirframgreidd gatnagerðargjöld að fjárhæð 13 m.kr. Eignir til eigin nota námu 3.793 m.kr. Eigið fé félagsins nam 31.915 m.kr. í lok júní 2020 og var eiginfjárhlutfall 30,9%. Heildarskuldir félagsins námu 71.460 m.kr. þann 30. júní 2020, þar af voru vaxtaberandi skuldir 61.157 m.kr. og tekjuskattsskuldbinding 7.105 m.kr. VirðisútleiguhlutfallVirðisútleiguhlutfall félagsins var 93,4% í lok ársfjórðungsins og lækkaði um 1,5% frá áramótum.Lækkun hlutafjárEndurkaupaáætluninni sem hrint var í framkvæmd 12. mars 2020 lauk þann 25. mars 2020 eftir tilkynningu frá stjórn félagsins. Gert hafði verið ráð fyrir kaupum fyrir allt að 500 m.kr. en félagið keypti einungis eigin hluti fyrir 7,5 m.kr. að nafnverði í fyrsta ársfjórðungi fyrir samtals 46,2 m.kr.Á aðalfundi félagsins sem haldinn var 10. júní 2020 var samþykkt að lækka hlutafé félagsins um þá hluti sem félagið hafði keypt í samræmi við endurkaupaáætlanir, 41.317.000 kr. að nafnverði og er hlutafé félagsins nú 3.423.863.435kr. Félagið á nú eigin hluti að fjárhæð 8.800.000 kr. að nafnverði. Útistandandi hlutir nema því 3.415.063.485 m.kr.Horfur og áhrif vegna COVID-19Áhrif COVID-19 á starfsemi félagsins hafa verið víðtæk. Staða viðskiptakrafna hefur hækkað um 132 m.kr. frá áramótum og nam niðurfærsla viðskiptakrafna 181 m.kr. á sama tímabili. Endanlegar afskriftir námu 21 m.kr. og varúðarafskriftir á viðskiptakröfum námu 160 m.kr. Staða viðskiptakrafna og fjárhæð afskrifta eru í takt við þær væntingar sem félagið hafði þegar uppfærðar horfur voru birtar.Enn er óljóst hvaða efnahagslegu áhrif faraldurinn mun hafa á rekstur félagsins. Félagið heldur áfram að vinna með leigutökum að úrlausnum þeirra mála sem snúast fyrst og fremst um frestun og greiðsludreifingu á leigu og rekstrargjöldum. Afkoma ársins mun því taka að miklu leyti mið af því hvernig leigutakar félagsins koma undan faraldrinum og hversu fljótt daglegt líf mun færast í eðlilegt horf. Stjórnendur telja ekki ástæðu til að endurskoða uppfærðar horfur félagsins.Sterk lausafjárstaðaFélagið hefur farið í ýmsar aðgerðir til að tryggja enn rýmri stöðu handbærs fjár. Félagið dró á 1.400 m.kr. bankafjármögnun sem tryggð var í upphafi faraldursins, endurkaupaáætlun var stytt ásamt því að stjórn lagði til að ekki yrði greiddur út arður vegna ársins 2019. Hluthafafundur samþykkti þá tillögu á aðalfundi 10. júní 2020.Þessu til viðbótar á félagið óádregna lánalínu að fjárhæð 800 m.kr. og óveðsettar eignir að fjárhæð  rúmlega 4.400 m.kr. Þá hefur félagið frestað sumum af þeim framkvæmdum sem áætlað hafði verið að ráðast í en voru ekki tengdar samningum við leigutaka. Staða félagsins gagnvart lánaskilmálum er áfram mjög sterk.Lausafjárstaða félagsins er sterk og í lok júní nam handbært fé félagsins 2.599 m.kr. Handbært fé frá rekstri var 1.191 m.kr. á tímabilinu.Stækkun skuldabréfaflokkaFélagið stækkaði skuldabréfaflokkinn EIK 050726 í júlí að fjárhæð 2.000 m.kr. að nafnverði á ávöxtunarkröfunni 2,25% og var andvirði útgáfunnar notað til að greiða upp óhagstæð bankalán.Skuldabréfaflokkarnir EIK 050726 og EIK 050749 voru teknir til viðskipta þann 25. júní síðastliðinn ásamt því að verðbréfa- og útgáfulýsingar flokkanna voru staðfestar af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.Félagið leitast ávallt eftir því að vera með sem hagkvæmustu vaxtakjör sem völ er á og hafa vextir félagsins haldið áfram að lækka. Vegnir verðtryggðir vextir námu 3,52% í lok júní og vegnir óverðtryggðir vextir 2,9% á sama tímabili.Sameining dótturfélagaUnnið er að því að sameina dótturfélagið EF1 hf. við félagið. Einnig er samrunaferli tveggja dótturfélaga Landfesta ehf. í vinnslu. Samrunarnir hafa ekki gengið í gegn en gert er ráð fyrir að það muni gerast á næstu vikum. Lögformlega munu samrunarnir miðast við 1. janúar 2020.Grjótháls 1-3 stækkaður um 3.200 fm.Skrifað var undir nýjan langtímaleigusamning við Össur um Grjótháls 1-3 í ágúst. Hluti af samningnum snýr að stækkun hússins um ca. 3.200 fm. Áætlaður framkvæmdakostnaður er um 1.100 m.kr. sem verður að fullu fjármagnaður með lánsfé og mun því ekki hafa marktæk áhrif á handbært fé félagsins. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á árinu og að þeim ljúki á 18-24 mánuðum. Vænt arðsemi af verkefninu er í takt við markmið félagsins.Eignasafn félagsinsFasteignir innan samstæðunnar eru rúmlega 100 talsins og telja rúmlega 310 þúsund útleigufermetra í rúmlega 600 leigueiningum. Heildarfjöldi leigutaka er yfir 400. Helstu fasteignir félagsins á höfuðborgarsvæðinu eru Borgartún 21 og 21a, Borgartún 26, Suðurlandsbraut 8 og 10, Mýrargata 2-16, Pósthússtræti 2 (Hótel 1919), Smáratorg 3 (Turninn), Smáratorg 1, Álfheimar 74 (Nýi Glæsibær), Grjótháls 1-3 og Austurstræti 5, 6, 7 og 17. Helsta fasteign félagsins utan höfuðborgarsvæðisins er Glerártorg. Stærstu leigutakar félagsins eru Húsasmiðjan, Flugleiðahótel, Ríkiseignir, Rúmfatalagerinn, Landsbankinn, Sýn, Síminn, Össur, Míla og Deloitte.Stærsti hluti fasteignasafns Eikar eru skrifstofuhúsnæði eða 45%. Næst koma verslunarhúsnæði 24%, lagerhúsnæði 13%, hótel 9%, heilsutengt húsnæði 4% og veitinga- og skemmtistaðir 4%. Um 91% fasteigna félagsins eru á höfuðborgarsvæðinu, þar af 37% á fjármála- og viðskiptasvæði Reykjavíkur (aðallega innan póstnúmera 105 og 108), 18% í miðbæ Reykjavíkur og 19% í Smáranum – Mjódd. 9% eignasafnsins er á landsbyggðinni, þar af tæplega 8% á Akureyri.Rafrænn kynningarfundur
Rafrænn kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 28. ágúst 2020 klukkan 8:30. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.
Skráning á fundinn fer fram hér:
https://origo.zoom.us/webinar/register/WN_w9mce8BmTniHtL-L6cLGNQ
Eftir skráningu fá þátttakendur tölvupóst með nánari upplýsingum.Fjárhagsdagatal 2020Árshlutauppgjör 3. ársfjórðungs 2020           28. október 2020Stjórnendauppgjör 2020 og áætlun 2021     11. febrúar 2021Ársuppgjör 2020                                            4. mars 2021Nánari upplýsingar veitir:Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 590-2200
Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is, s. 820-8980
Viðhengi30.06.2020 Staðfesting á fjárhagslegum skilmálum EIK 15 130.06.2020 Staðfesting á fjárhagslegum skilmálum EIK 05072630.06.2020 Staðfesting á fjárhagslegum skilmálum EIK 05074930.06.2020 Staðfesting á fjárhagslegum skilmálum EIK 16104730.06.2020 Staðfesting á fjárhagslegum skilmálum EIK1003461H Árshlutaskýrsla 2020

Disclaimer & Cookie Notice

Welcome to GOLDEA services for Professionals

Before you continue, please confirm the following:

Professional advisers only

I am a professional adviser and would like to visit the GOLDEA CAPITAL for Professionals website.

Important Notice for Investors:

The services and products offered by Goldalea Capital Ltd. are intended exclusively for professional market participants as defined by applicable laws and regulations. This typically includes institutional investors, qualified investors, and high-net-worth individuals who have sufficient knowledge, experience, resources, and independence to assess the risks of trading on their own.

No Investment Advice:

The information, analyses, and market data provided are for general information purposes only and do not constitute individual investment advice. They should not be construed as a basis for investment decisions and do not take into account the specific investment objectives, financial situation, or individual needs of any recipient.

High Risks:

Trading in financial instruments is associated with significant risks and may result in the complete loss of the invested capital. Goldalea Capital Ltd. accepts no liability for losses incurred as a result of the use of the information provided or the execution of transactions.

Sole Responsibility:

The decision to invest or not to invest is solely the responsibility of the investor. Investors should obtain comprehensive information about the risks involved before making any investment decision and, if necessary, seek independent advice.

No Guarantees:

Goldalea Capital Ltd. makes no warranties or representations as to the accuracy, completeness, or timeliness of the information provided. Markets are subject to constant change, and past performance is not a reliable indicator of future results.

Regional Restrictions:

The services offered by Goldalea Capital Ltd. may not be available to all persons or in all countries. It is the responsibility of the investor to ensure that they are authorized to use the services offered.

Please note: This disclaimer is for general information purposes only and does not replace individual legal or tax advice.