Skip to main content

Uppgjör Brims hf. á öðrum ársfjórðungi 2020

Rekstrartekjur samstæðunnar á öðrum árfjórðungi voru 60,3 m€ og 133,1 m€ á fyrri árshelmingi (2F 2019: 49,6 m€, 1H 2019: 105,5 m€).  Aukningu rekstrartekna má fyrst og fremst rekja til þess að sölufélög í Asíu eru hluti af samstæðunni í ár, en félögin eru hluti af samstæðureikningsskilum Brims frá 1. október 2019.  Rekstrartekjur sölufélaganna, að teknu tilliti til innbyrðis viðskipta námu 25 m€ á öðrum ársfjórðungi og 45 m€ á fyrri árshelmingi 2020.EBITDA nam 9,5 m€ á öðrum ársfjórðungi og 17,2 m€ á fyrri árshelmingi (2F 2019: 13,3 m€, 1H 2019: 23,1 m€)Hagnaður á öðrum ársfjórðungi var 5,0 m€ og hagnaður á fyrri árshelmingi 5,4 m€ (2F 2019 6,8 m€ hagnaður, 1H 2019: 10,7m€ hagnaður)Handbært fé frá rekstri nam 18,9 m€ á fyrri árshelmingi (1H 2019: 31,1 m€)Fiskvinnslan Kambur ehf., Grábrók ehf. og Grunnur ehf. eru hluti af samstæðunni frá og með 1. maí.  Dótturfélagið Norðanfiskur ehf. var selt í júlí, og hefur rekstur og efnahagur þess félags verið færður undir aflagða starfsemi.
Rekstur fyrstu sex mánaða ársins 2020Rekstrartekjur Brims hf. á fyrri helmingi ársins 2020 námu 133,1 m€, samanborið við 105,5 m€ árið áður.  Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 17,2 m€ eða 12,9% af rekstrartekjum, en var 23,1 m€ eða 21,9% árið áður.  Áhrif fjáreignatekna og fjármagnsgjalda voru neikvæð um 3,7 m€, en voru neikvæð um 2,4 m€ á sama tíma árið áður.  Áhrif hlutdeildarfélaga voru jákvæð um 0,2 m€, en voru jákvæð um 0,3 m€ árið áður.  Hagnaður fyrir tekjuskatt var 6,6 m€ og hagnaður tímabilsins var 5,4 m€. EfnahagurHeildareignir félagsins námu 749,0 m€ í lok júní 2020. Þar af voru fastafjármunir 622,7 m€ og veltufjármunir 126,2 m€.  Eigið fé nam 315,5 m€, eiginfjárhlutfall í lok júní var 42,1%, en var 45,3% í lok árs 2019. Heildarskuldir félagsins voru í júnílok 433,4 m€.SjóðstreymiHandbært fé frá rekstri nam 18,9 m€ á tímabilinu, en nam 31,1 m€ á sama tíma fyrra árs.  Fjárfestingarhreyfingar voru neikvæðar um 40,8 m€.  Fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar um 4,1 m€.  Handbært fé lækkaði um 26,6 m€ á tímabilinu og var í lok júní 26,9 m€.Meginniðurstöður færðar til íslenskra krónaSéu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi fyrri árshelming 2020 (1 evra = 148,06 kr) verða tekjur 19,7 milljarðar króna, EBITDA 2,5 milljarðar og hagnaður 0,8 milljarðar.  Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á gengi 30. júní 2020 (1 evra = 155,4 kr) verða eignir samtals 116,4 milljarðar króna, skuldir 67,4 milljarðar og eigið fé 49,0 milljarðar.Skipastóll og afliÍ lok júní gerði samstæðan út 10 fiskiskip, en línubátarnir Kristján HF-100 og Steinunn HF-108 bættust við þegar Grunnur ehf. og Grábrók ehf. urðu hluti af samstæðunni 1. maí síðastliðinn.Á fyrri árshelmingi ársins 2020 var afli skipa samstæðunnar 23,0 þúsund tonn af botnfiski og 34,0 þúsund tonn af uppsjávarfiski. Á sama tíma 2019 var afli skipa samstæðunnar 26,5 þúsund tonn af botnfiski og 43,6 þúsund tonn af uppsjávarfiski.Önnur málÁhrif veirufaraldursins COVID-19 á rekstur samstæðunnar hafa verið umtalsverð á  tímabilinu.  Stjórnendur og starfsmenn félagsins hafa markvisst unnið að því að hlúa að öryggi starfsmanna og með samstilltu átaki hefur tekist að koma í veg fyrir röskun á starfseminni. Gripið hefur verið til margháttaðra varnaraðgerða gegn smiti og mikil áhersla lögð á aukið hreinlæti, aðskilnað starfsmanna, takmörkun á aðgengi að starfsstöðvum og annað sem tengist sóttvarnaraðgerðum. Breytingar hafa orðið á mörkuðum víða um heim, með breyttu neyslumynstri matvara og margvíslegum efnahagslegum áhrifum. Til að mynda hafa veitingahús og mötuneyti á lykilmörkuðum samstæðunnar ýmist verið lokuð eða með skerta starfsemi og söluleiðir því aðrar en áður. Aukin sala hefur hins vegar verið á sjávarafurðum á öðrum mörkuðum s.s. í smásöluverslunum.  Flutningaleiðir, ekki síst í lofti, en einnig á sjó, hafa raskast og kostnaður aukist og einnig hefur framleiðslusamsetning breyst vegna framangreindra þátta.Áhrif heimsfaraldursins á rekstur Brims á næstu mánuðum og misserum ræðst eðlilega af þróun heimsfaraldursins og alkunna er að þar ríkir mikil óvissa. Stjórnendur Brims fylgjast náið með þróun mála á helstu mörkuðum en samstæðan er vel í stakk búin til að takast á við breyttar aðstæður, en ekki er hægt að segja til um það hversu mikil áhrif faraldurinn mun hafa á rekstur og efnahag samstæðunnar. 
Kristján Þ. Davíðsson, stjórnarformaður Brims hf.:Erfiðar gæftir og minni veiði uppsjávarfisks, áhrif covid heimsfaraldursins á markaði og gagnger endurnýjun og tæknivæðing botnfiskvinnslu félagsins í Norðurgarði einkenndu rekstur á fyrri árshelmingi.  Í ljósi framangreindra aðstæðna er niðurstaða uppgjörs Brims á fyrri árshelmingi ársins 2020 ásættanleg segir Kristján Þ. Davíðsson.Kynningarfundur þann 21. ágúst 2020Rafrænn kynningarfundur um afkomu félagsins á öðrum ársfjórðungi verður haldinn föstudaginn 21. ágúst klukkan 8:30.  Í ljósi aðstæðna fer hann eingöngu fram í gegnum fjarfundabúnað.  Hægt er að sækja um aðgang að fundinum á póstfangið kynning@brim.is.
Kristján Þ. Davíðsson stjórnarformaður mun kynna uppgjörið og svara spurningum.ViðhengiBrim Árshlutareikn 30.06.2020Afkoma Brims hf 2Q2020

Disclaimer & Cookie Notice

Welcome to GOLDEA services for Professionals

Before you continue, please confirm the following:

Professional advisers only

I am a professional adviser and would like to visit the GOLDEA CAPITAL for Professionals website.

Important Notice for Investors:

The services and products offered by Goldalea Capital Ltd. are intended exclusively for professional market participants as defined by applicable laws and regulations. This typically includes institutional investors, qualified investors, and high-net-worth individuals who have sufficient knowledge, experience, resources, and independence to assess the risks of trading on their own.

No Investment Advice:

The information, analyses, and market data provided are for general information purposes only and do not constitute individual investment advice. They should not be construed as a basis for investment decisions and do not take into account the specific investment objectives, financial situation, or individual needs of any recipient.

High Risks:

Trading in financial instruments is associated with significant risks and may result in the complete loss of the invested capital. Goldalea Capital Ltd. accepts no liability for losses incurred as a result of the use of the information provided or the execution of transactions.

Sole Responsibility:

The decision to invest or not to invest is solely the responsibility of the investor. Investors should obtain comprehensive information about the risks involved before making any investment decision and, if necessary, seek independent advice.

No Guarantees:

Goldalea Capital Ltd. makes no warranties or representations as to the accuracy, completeness, or timeliness of the information provided. Markets are subject to constant change, and past performance is not a reliable indicator of future results.

Regional Restrictions:

The services offered by Goldalea Capital Ltd. may not be available to all persons or in all countries. It is the responsibility of the investor to ensure that they are authorized to use the services offered.

Please note: This disclaimer is for general information purposes only and does not replace individual legal or tax advice.