REG3A fjármögnun gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. í ágúst 2014. Meðfylgjandi er árshlutareikningur 2020 fyrir fagfjárfestasjóðinn REG3A fjármögnun.Hagnaður sjóðsins á fyrri árshelmingi 2020 nam 38 þús. kr. samkvæmt rekstrarreikningi.Hrein eign sjóðsins nam 985 þús. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningur sjóðsins gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, fjárhagsstöðu hans 30.06.2020 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga.Nánari upplýsingar veitir Þorkell Magnússon, forstöðumaður skuldabréfa, Júpíter rekstrarfélagi hf. í síma 854-1090.ViðhengiREG3A árshlutareikningur 30.6.2020