Orkuveita Reykjavíkur endurfjármagnar eigendalán

Í samræmi við uppgreiðsluheimildir hefur Orkuveita Reykjavíkur óskað eftir að greiða upp víkjandi skuldabréf sem gefin voru út af eigendum félagsins árið 2011 á 4,5% vöxtum til 15 ára. Eftirstöðvar skuldabréfsins námu þann 1. júlí síðastliðinn um 5,9 ma. kr. og er uppgreiðslan áætluð innan árs 2020. Reykjavíkurborg hefur samþykkt uppgreiðslubeiðni og beðið er meðhöndlunar í byggðaráði Borgarbyggðar og bæjarráði Akraneskaupstaðar.Nánari upplýsingar:Ingvar Stefánsson
framkvæmdastjóri Fjármála OR
Sími: 516-6100
Netfang: ingvar.stefansson@or.is
