VÍS: Lækkun hlutafjár

Skráð hefur verið í Fyrirtækjaskrá hlutafjárlækkun Vátryggingafélags Íslands hf. að nafnverði kr. 58.180.115, í kjölfar þess að á aðalfundi félagsins þann 19. mars 2020 var samþykkt tillaga stjórnar um að lækka hlutafé félagsins úr kr. 1.952.642.307 að nafnverði í kr. 1.894.462.192 að nafnverði, og að eigin hlutir félagsins að nafnverði kr. 58.180.115 verði þannig ógiltir. Lagaskilyrðum fyrir lækkun hlutafjárins hefur nú verið fullnægt og lækkunin verið framkvæmd.Skráð hlutafé félagsins eftir lækkunina er því að nafnverði kr. 1.894.462.192 sem skiptist í jafnmarga hluti og fylgir hverjum hlut eitt atkvæði. Eftir hlutafjárlækkunina á VÍS enga eigin hluti.Nánari upplýsingar veitir Guðný Helga Herbertsdóttir, með tölvupósti á gudnyhh@vis.is og í síma 660-5191.