Skip to main content

EIMSKIP: EBITDA á fyrsta ársfjórðungi undir væntingum

Samkvæmt drögum að stjórnendauppgjöri fyrir ársfjórðung 2020 lítur út fyrir að EBITDA sé á bilinu 9.0-9.5 milljónir evra samanborið við 13.2 milljónir evra á síðasta ári (5,0-5,5 milljónir evra samanborið við 10,6 milljónir evra án áhrifa IFRS 16). Rekstrarniðurstaða á fyrsta ársfjórðungi í fyrra var mjög góð og þrátt fyrir að ekki hafi verið búist við sambærilegri niðurstöðu á fyrsta fjórðungi þessa árs, þá er hún samt undir væntingum.
Rekstur fyrsta ársfjórðungs þessa árs var nokkuð sveiflukenndur eins og tilkynnt var fyrr á árinu þegar afkomuspá félagsins var afnumin. Janúar fór ágætlega af stað, febrúar var hins vegar talsvert undir áætlun en mars í takti við væntingar. Magn í siglingakerfum félagsins var 5.0% minna en á sama tímabili síðasta árs. Þrátt fyrir að innflutningsmagn til Íslands hafi verið lægra en síðasta ár var það engu að síður í takti við væntingar. Hins vegar var útflutningsmagn frá Íslandi og Færeyjum töluvert undir væntingum sem skýrist einna helst með minni veiðum og minni útflutningi á ferskum laxi  vegna minna flutningsframboðs í fraktflugi til Kína vegna COVID-19. Að auki var einskiptiskostnaður vegna afhendingar á frystiflutningsskipum í Noregi, sem seld voru í lok síðasta árs,  töluvert hærri en gert var ráð fyrir. Magn í flutningsmiðlun minnkaði um 7% milli fjórðunga. Frystiflutningsmiðlun hélt ágætlega þrátt fyrir áskoranir tengdum búnaði, minnkun á flutningsgetu hjá stóru alþjóðlegu skipafélögunum og vegna stíflu í gámaflæði í Kína vegna COVID-19.Ráðist hefur verið í ýmsar hagræðingaraðgerðir það sem af er áriFyrirtækið hefur stigið mörg skref á vegferð sinni að hagræða og samþætta í rekstri. Helstu aðgerðir sem ráðist hefur verið í á árinu til þessa eru:Fjölda stöðugilda hjá Eimskip samstæðunni hefur fækkað um 170 í öllum lögum fyrirtækisins, þar með talið stjórnendum. Þetta jafngildir 10% fækkum stöðugilda frá upphafi árs.Gámasiglingakerfi félagsins hefur verið tímabundið aðlagað sem gerði félaginu kleift að skila tveimur gámaskipum sem voru í leigu fyrr en áætlað var. Þetta kerfi verður í rekstri þar til Dettifoss kemur í þjónustu og samstarfið við grænlenska skipafélagið Royal Arctic Line hefst sem gert er ráð fyrir að verði um miðjan júní. Áætlaður sparnaður á þriggja mánaða tímabili er um 2 milljónir evra.   Ýmsum fjárfestingum hefur verið frestað til að tryggja enn frekar sterka lausafjárstöðu félagsins á þessum óvissu tímum.Heildaráhrif COVID-19 faraldursins á alþjóðahagkerfið, þar með talið landanna við Norður-Atlantshaf þar sem lykilmarkaður félagsins er, eiga eftir að koma að fullu í ljós.
Fyrirtækið hefur orðið fyrir beinum kostnaðaráhrifum vegna COVID-19 t.d. kostnaði vegna seinkunar á afhendingu á Dettifossi, áskorunum og auknum kostnaði við afhendingu á Goðafossi og Laxfossi til nýs eiganda og auk kostnaðar tengdum ýmsum aðgerðum sem félagið hefur ráðist í til að tryggja öryggi og heilsu starfsmanna og til að halda flutningakeðjunni gangandi og þjónustu við viðskiptavini.Eimskip vinnur enn að uppgjöri fyrsta ársfjórðungs og afkoman getur tekið breytingum í uppgjörsferlinu.Afkoma félagsins fyrir fyrsta ársfjórðung verður birt þann 19. maí.Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á investors@eimskip.is.

Disclaimer & Cookie Notice

Welcome to GOLDEA services for Professionals

Before you continue, please confirm the following:

Professional advisers only

I am a professional adviser and would like to visit the GOLDEA CAPITAL for Professionals website.

Important Notice for Investors:

The services and products offered by Goldalea Capital Ltd. are intended exclusively for professional market participants as defined by applicable laws and regulations. This typically includes institutional investors, qualified investors, and high-net-worth individuals who have sufficient knowledge, experience, resources, and independence to assess the risks of trading on their own.

No Investment Advice:

The information, analyses, and market data provided are for general information purposes only and do not constitute individual investment advice. They should not be construed as a basis for investment decisions and do not take into account the specific investment objectives, financial situation, or individual needs of any recipient.

High Risks:

Trading in financial instruments is associated with significant risks and may result in the complete loss of the invested capital. Goldalea Capital Ltd. accepts no liability for losses incurred as a result of the use of the information provided or the execution of transactions.

Sole Responsibility:

The decision to invest or not to invest is solely the responsibility of the investor. Investors should obtain comprehensive information about the risks involved before making any investment decision and, if necessary, seek independent advice.

No Guarantees:

Goldalea Capital Ltd. makes no warranties or representations as to the accuracy, completeness, or timeliness of the information provided. Markets are subject to constant change, and past performance is not a reliable indicator of future results.

Regional Restrictions:

The services offered by Goldalea Capital Ltd. may not be available to all persons or in all countries. It is the responsibility of the investor to ensure that they are authorized to use the services offered.

Please note: This disclaimer is for general information purposes only and does not replace individual legal or tax advice.