Skip to main content

Kvika stækkar eignastýringarstarfsemi sína í Bretlandi

KKV Investment Management Ltd., dótturfélag Kvika Securities Ltd., sem er dótturfélag Kviku banka í Bretlandi, hefur náð samkomulagi um að taka við stýringu breska veðlánasjóðsins SQN Asset Finance Income Fund. Eignir sjóðsins eru í dag metnar á £390 milljónir, andvirði um 70 milljarða króna, og eru hlutabréf hans skráð á aðallista kauphallarinnar í London (e. London Stock Exchange).
Stýring SQN Asset Finance Income Fund var boðin út í febrúar síðastliðnum, en stjórn sjóðsins tók ákvörðun um að ráða KKV að undangengnu tveggja mánaða valferli. Samkomulagið sem nú hefur verið undirritað við stjórn sjóðsins er óskuldbindandi en gert er ráð fyrir að gengið verði frá formlegum samningum í maí og að KKV taki við stýringu sjóðsins í byrjun júní.KKV er nýstofnað félag sem sérhæfir sig í eignastýringu á sviði sérhæfðrar lánastarfsemi, en þau Dawn Kendall og Ariel Vegoda koma til með að leiða starfsemi félagsins. Dawn og Ariel hafa áratuga reynslu af eignastýringu á breskum markaði, en þau voru áður starfsmenn SQN Capital Management, núverandi sjóðastýranda sjóðsins. Auk þeirra munu um 15 starfsmenn SQN ganga til liðs við KKV þegar félagið tekur formlega við stýringu sjóðsins.SQN Asset Finance Income Fund var stofnaður árið 2014 og er lánasjóður sem veitir veðtryggð lán til lítilla og meðalstórra fyrirtækja að mestu í Bretlandi, Evrópu og Bandaríkjunum. Eftir að hafa notið mikilla vinsælda meðal fjárfesta hefur sjóðurinn átt undir högg að sækja undanfarið vegna erfiðleika við úrvinnslu ákveðinna eigna og hefur því verð hlutabréfa sjóðsins verið umtalsvert undir útgefnu gengi eigna hans (e. Net Asset Value). Hlutverk KKV við stýringu sjóðsins mun því, til skemmri tíma lítið, einkum miða að því að endurskipuleggja og hámarka virði eigna sjóðsins, ásamt því að vinna úr áhrifum af COVID-19 á útlán sjóðsins.KKV verður rekið sem sjálfstætt eignastýringarfélag og munu Dawn Kendall, Ariel Vegoda og aðrir stjórnendur eignast minnihluta í félaginu. Í stjórn félagsins munu setjast f.h. Kviku Securities, Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri, Helgi Bergs, framkvæmdastjóri Kvika Advisory Ltd., dótturfélags Kviku Securities, og Ragnar Dyer, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Kviku banka.Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Kvika Securities Ltd., segir:
„Við erum mjög ánægð með að þessum áfanga sé náð og gerum ráð fyrir að gengið verði frá þessum samningum formlega fyrir lok maí.  Með samningunum er verið að taka stórt skref í starfsemi Kviku í Bretlandi á sviði eignastýringar, sem er hornsteinn í stefnu Kviku varðandi uppbyggingu starfsemi sinnar í Bretlandi. Með þessum samningum og tengdum breytingum munu eignir okkar í stýringu í Bretlandi rúmlega sexfaldast og starfsmannafjöldi rúmlega fjórfaldast. Það er frábært fyrir okkur að fá til liðs við okkur öflugt og reynslumikið sjóðastýringateymi undir forystu Dawn og Ariel, og er það grunnur sem við sjáum mikið tækifæri til að byggja við á komandi árum, einkum í eignaflokki lána- og skuldabréfasjóða. Við teljum að eftirspurn eftir slíkum sjóðum, sem veita fjárfestum stöðuga áhættuvogaða ávöxtun, muni aukast á næstu árum, í ljósi þess að vaxtastig um allan heim er mjög lágt um þessar mundir“. 
Um aðila:Kvika Securities Ltd.:
Kvika Securities er dótturfélag Kviku banka og sinnir starfsemi Kviku í Bretlandi. Félagið hóf starfsemi sína í byrjun árs 2017 og starfar undir eftirliti breska fjármálaeftirlitsins (FCA). Kvika Securities er með starfsheimildir til reksturs sérhæfðra sjóða, eignastýringar og fyrirtækjaráðgjafar og er félagið í dag með um £70m (ca. 12.5 makr) af eignum í stýringu. Á skrifstofu félagsins í London starfa nú fimm starfsmenn.
Dawn Kendall:
Dawn hefur 34 ára reynslu í fjármálageiranum í Bretlandi, þ.m.t. 25 ára reynslu við stýringu á lána- og skuldabréfasjóðum hjá stórum sjóðastýringaaðilum eins og eignastýringarfyrirtækjunum Investec Wealth, Architas (dótturfélag Axa Investment Managers),  Newton Investment Management, TwentyFour Asset Management, vogunarsjóðinum International Asset Management og fjárfestingarfélaginu Codelouf Trust.  Styrkleikar hennar tengjast fyrst og fremst stýringu lána- og skuldabréfasafna. Frá 2017 hefur hún starfað sem sjóðsstjóri veðlánasjóðsins SQN Secured Income Fund og hefur henni á þeim tíma tekist að endurskipuleggja eignasafn sjóðsins og bæta arðgreiðsluþekju hans.
Ariel Vegoda:
Ariel er lögfræðingur að mennt og hefur áratuga reynslu og sérhæfingu á sviði reksturs sjóða, endurskipulagningu lánasafna og almennri úrvinnslu tengdum eignasöfnum lánasjóða.  Ariel kom til starfa hjá SQN Capital Management Ltd. sem yfirmaður lögfræðisviðs árið 2015 og var gerður að rekstrarstjóra (e. Chief Operating Officer) árið 2019. Áður en hann kom til starfa hjá SQN starfaði hann sem lögmaður hjá bresku lögfræðistofunni Mishcon de Reya og sérhæfði sig þar í félaga- og viðskiptarétti og úrvinnslu eigna og eignasafna.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Kvika Securities Ltd., s. 691 9366, gunnar@kvika.co.ukNánari upplýsingar má einnig finna í tilkynningu frá stjórn SQN Asset Finance Income Fund sem birtist í kauphöllinni í London í morgun: https://www.londonstockexchange.com/exchange/news/market-news/market-news-detail/SQN/14522573.html

Disclaimer & Cookie Notice

Welcome to GOLDEA services for Professionals

Before you continue, please confirm the following:

Professional advisers only

I am a professional adviser and would like to visit the GOLDEA CAPITAL for Professionals website.

Important Notice for Investors:

The services and products offered by Goldalea Capital Ltd. are intended exclusively for professional market participants as defined by applicable laws and regulations. This typically includes institutional investors, qualified investors, and high-net-worth individuals who have sufficient knowledge, experience, resources, and independence to assess the risks of trading on their own.

No Investment Advice:

The information, analyses, and market data provided are for general information purposes only and do not constitute individual investment advice. They should not be construed as a basis for investment decisions and do not take into account the specific investment objectives, financial situation, or individual needs of any recipient.

High Risks:

Trading in financial instruments is associated with significant risks and may result in the complete loss of the invested capital. Goldalea Capital Ltd. accepts no liability for losses incurred as a result of the use of the information provided or the execution of transactions.

Sole Responsibility:

The decision to invest or not to invest is solely the responsibility of the investor. Investors should obtain comprehensive information about the risks involved before making any investment decision and, if necessary, seek independent advice.

No Guarantees:

Goldalea Capital Ltd. makes no warranties or representations as to the accuracy, completeness, or timeliness of the information provided. Markets are subject to constant change, and past performance is not a reliable indicator of future results.

Regional Restrictions:

The services offered by Goldalea Capital Ltd. may not be available to all persons or in all countries. It is the responsibility of the investor to ensure that they are authorized to use the services offered.

Please note: This disclaimer is for general information purposes only and does not replace individual legal or tax advice.