Marel: 1F 2020 Fjárfestakynning
Marel hf. birti uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2020 eftir lokun markaðar þann 20. apríl 2020.Rafrænn afkomufundur með markaðsaðilumÍ dag, þriðjudag 21. apríl 2020 kl. 8:30 verður haldinn rafrænn afkomufundur með markaðsaðilum og fjárfestum. Þar munu Árni Oddur Þórðarson forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á fyrsta ársfjórðungi.Meðfylgjandi má finna 1F 2020 fjárfestakynningu sem farið verður yfir á afkomufundinum.Fundinum er vefvarpað beint á www.marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á www.marel.com/IR eftir fundinn.Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:IS: +354 800 7520NL: +31 20 721 9496UK: +44 33 3300 9268US: +1 833 823 0586FjárfestatengslNánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið ir@marel.com og í síma 563 8001.Um MarelMarel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá félaginu starfa um 6.300 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti um 1,3 milljarði evra árið 2019 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, en í júní 2019 fór fram tvíhliða skráning á hlutabréfum í félaginu í Euronext kauphöllinni í Amsterdam.ViðhengiMarel Q1 2020 Investor Presentation_vF