Sláturfélag Suðurlands svf. – Rafræn skráning 20. apríl 2020

Öll hlutabréf í B-deild stofnsjóðs Sláturfélags Suðurlands svf. hafa verið tekin til rafrænnar skráningar í kerfi Nasdaq verðbréfamiðstöðvar hf. í dag 20. apríl 2020. Frá þeim tíma eru hin áþreifanlegu hlutabréf í félaginu ógild.Að lokinni rafrænni skráningu geta hluthafar nálgast hluti sína sem og arð með því að fela reikningsstofnun sem gert hefur aðildarsamning við Nasdaq verðbréfamiðstöð hf. umsjón með eignarhlut sínum í félaginu og stofna vörslureikning. Arður verður framvegis einungis greiddur út í gegnum kerfi Nasdaq verðbréfamiðstöðvar hf.Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.