Sjóvá: Uppgjör þriðja ársfjórðungs 2019 verður birt 31. október – kynningarfundur sama dag kl. 16:15
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. munu birta uppgjör þriðja ársfjórðungs 2019 eftir lokun markaða fimmtudaginn 31. október. Markaðsaðilum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð kl. 16:15 þann sama dag. Hermann Björnsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum.Kynning á uppgjörinu verður aðgengileg á vef Sjóvár www.sjova.is frá þeim tíma er kynningarfundurinn hefst. Einnig verður hægt að fylgjast með fundinum á vefnum á slóðinni www.sjova.is/afkomukynningar.