VÍS: Samsett hlutfall og ávöxtun fjáreigna í febrúar 2020

Samsett hlutfall* var 109.7% í febrúar. Samsett hlutfall síðustu 12 mánaða er 103,5%. Ávöxtun fjárfestingaeigna í febrúar var neikvæð um 0,3% en ávöxtun í janúar og febrúar er 1,1%.VÍS greiddi viðskiptavinum sínum rúmlega 1,5 milljarð króna í tjónabætur í febrúar.*Samsett hlutfall er tjónakostnaður, endurtryggingakostnaður og rekstrarkostnaður af vátryggingastarfsemi sem hlutfall af iðgjöldum. Hafa skal í huga að tjónakostnaður tryggingafélaga getur sveiflast á milli mánaða.Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660 5260 eða með netfanginu fjarfestatengsl@vis.is.