Lánasjóður sveitarfélaga – Niðurstaða viðbótarútgáfu í skuldabréfaútboði

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í LSS150434 þann 18. mars 2020. Uppgjör viðskipta fer fram 20. mars 2020.Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu.Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 560.000.000 á bilinu 1,36% – 1,40%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 500.000.000 á ávöxtunarkröfunni 1,38%. Að þessu sinni óskuðu aðalmiðlarar eftir að nýta sér kauprétt fyrir viðbót í LSS150434 fyrir ISK 30.000.000 að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 1,38% og hefur Lánasjóðurinn ákveðið að verða við þeim óskum. Heildarmagn seldra bréfa í útboðinu í LSS150434 að meðtaldri viðbótarútgáfunni er ISK 530.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 57.267.152.565.Nánari upplýsingar veitir:
Örvar Þ. Ólafsson
Sími: 515 4947
T-póstur: orvar@lanasjodur.is