Marel: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum samkvæmt endurkaupaáætlun

Í viku 11 keypti Marel hf. 939.374 eigin hluti á Nasdaq á Íslandi að kaupverði 470.090.838 kr. eins og nánar er tilgreint hér á eftir:Um er að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um þann 10. mars 2020 og er gerð í samræmi við heimild aðalfundar Marel hf., þann 6. mars 2019.Marel hf. átti 10.773.814 eigin hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 11.713.188 eigin hluti eða sem nemur 1,52% af útgefnum hlutum í félaginu.Marel hf. hefur keypt samtals 939.374 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,12% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 470.090.838 kr.Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 25.000.000 hlutum eða sem nemur 3,2% af útgefnum hlutum í félaginu. Endurkaupaáætlunin er í gildi á tímabilinu 11. mars 2020 til og með 4. september 2020.Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“), og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052.FjárfestatengslNánari upplýsingar veita Fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið:IR@marel.com og í síma +354 563 8001.Um MarelMarel er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá félaginu starfa um 6.300 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti um 1,3 milljarði evra árið 2019 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan árið 1992 og var lokið við tvíhliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam í júní 2019.