Sýn hf.: Framkomin framboð – breytt tillaga að starfskjarastefnu – fyrirkomulag aðalfundar

Eftirtalin gefa kost á sér til stjórnar, varastjórnar og tilnefningarnefndar Sýnar á aðalfundi, sem haldinn verður föstudaginn 20. mars 2020 kl. 10:00.Framboð til aðalstjórnar:
* Hjörleifur Pálsson
* Tanya Zharov
* Sigríður Vala Halldórsdóttir
* Petrea Ingileif Guðmundsdóttir
* Hilmar Þór KristinssonFramboð til varastjórnar:
* Óli Rúnar Jónsson
* Þyri Dröfn KonráðsdóttirFramboðsfrestur er nú útrunninn og hefur stjórn félagsins staðfest lögmæti framboðanna. Í samþykktum Sýnar hf. kemur fram að fimm skipa stjórn félagsins og tveir sitja í varastjórn. Verður því sjálfkjörið í báðum tilvikum.Framboð til tilnefningarnefndar:
Í samræmi við starfsreglur stjórnar og starfsreglur tilnefningarnefndar gefst hluthöfum jafnframt tækifæri á að kjósa tvo af þremur í tilnefningarnefnd. Þriðji meðlimur í tilnefningarnefnd er tilnefndur af stjórn félagsins.
Framboð til tilnefningarnefndar:
* Ragnheiður S. Dagsdóttir
* Þröstur Olaf SigurjónssonÞar sem einungis tvö framboð til tilnefningarnefndar bárust innan framboðsfrests verða þeir nefndarmenn sem kosnir eru af aðalfundi félagsins sjálfkjörnir.Breytt tillaga að starfskjarastefnu:
Í viðhengi er að finna endanlegar tillögur stjórnar, sem og tillögu að starfskjarastefnu. Vakin er athygli á að lagt er til að 4. gr. starfskjarastefnunnar verði breytt á þann veg að árangurstengdar greiðslur geti að hámarki numið fjögurra mánaða grunnlaunum hlutaðeigandi stjórnanda eða lykilstarfsmanns.Fyrirkomulag aðalfundar:
Fundurinn verður aðalstöðvum félagsins, að Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík. Öllum tilmælum Landlæknis um fundarhald verður að sjálfsögu fylgt. Fundinum verður jafnframt streymt. Ekki er unnt að bjóða upp á möguleika á rafrænni þáttöku í fundinum, en hluthafar geta veitt umboð til umboðsmanns um þátttöku á fundinum með fyrirmælum um hvernig atkvæði skuli greidd um þær tillögur sem til afgreiðslu eru. Óskir um útgáfu umboðs og skipan umboðsmanns skal beint til netfangsins kristinn@advel.isViðhengidagskrá og endanlegar tillögur stjórnar – kauphöll 1603 2020Tillaga að starfskjarastefnu – kauphöll 16032020