Undirritun samninga í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði

Í dag var skrifað undir samninga milli Lánamála ríkisins f.h. ríkissjóðs og aðalmiðlara í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Markmiðið með samningunum er að viðhalda aðgengi ríkissjóðs að lánsfé og efla verðmyndun ríkisverðbréfa á eftirmarkaði.Frá og með 1. apríl 2020 hafa fjögur fjármálafyrirtæki heimild til að kalla sig „aðalmiðlara með ríkisverðbréf“. Þau eru: Arion banki hf., Íslandsbanki hf., Kvika banki hf. og Landsbankinn hf. Helstu atriði samningsins eru þessi:Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum með markflokka ríkisverðbréfa.Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að sérstakri fyrirgreiðslu, s.s. endurhverfum samningum og verðbréfalánum sem Lánamál ríkisins veita fyrir hönd ríkissjóðs.Aðalmiðlari skuldbindur sig til að setja fram tilboð í útboðum ríkisverðbréfa fyrir a.m.k. 100 m.kr. að nafnverði.Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir alla markflokka ríkisverðbréfa og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 50 til 100 m.kr. að nafnvirði í hvern flokk í kauphöll (nánar skilgreint í samningi).Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að halda verðmun kaup- og sölutilboða innan tiltekinna marka sem nánar eru skilgreind í samningnum.Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 10 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Aðalmiðlara er heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða ef tilteknum skilyrðum er fullnægt.Samningurinn gildir frá 1. apríl 2020 til 31. mars 2021.Frekari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson forstöðumaður Lánamála ríkisins í síma 569 9600.ViðhengiFréttatilk. eftir undirritun samninga