VÍS: Samsett hlutfall og ávöxtun fjáreigna í september 2019
Samsett hlutfall* var 96% í september og það sem af er ári er það 99,3%. Samsett hlutfall síðustu 12 mánaða er 100,4%. Lækkun vaxta hafði 3,5% áhrif til hækkunar á samsett hlutfall í mánuðinum.Ávöxtun fjárfestingaeigna VÍS í september var neikvæð um 0,5% en ávöxtun frá áramótum er 7,5%.
VÍS greiddi viðskiptavinum sínum tæplega 1,6 milljarð króna í tjónabætur** í september og hefur greitt viðskiptavinum tæplega 12,6 milljarða króna í tjónabætur það sem af er ári.
*Samsett hlutfall er tjónakostnaður, endurtryggingakostnaður og rekstrarkostnaður af vátryggingahluta sem hlutfall af iðgjöldum.
**Hafa skal í huga að tjónakostnaður tryggingafélaga getur sveiflast mjög á milli mánaða.Nánari upplýsingar veitir Óskar Þorvaldsson samskiptastjóri í síma 660 5252.