Fagfjárfestasjóðurinn ÍSH: Árshlutareikningur 30. júní 2021
Fagfjárfestasjóðurinn ÍSH gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. á árinu 2014. Meðfylgjandi er árshlutareikningur 30. júní 2021 fyrir fagfjárfestasjóðinn ÍSH.
- Tap sjóðsins á fyrri árshelmingi 2021 nam 557 þús.kr. samkvæmt rekstrarreikningi.
- Hrein eign sjóðsins var neikvæð um 1.840 þús.kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
- Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. Við könnun þeirra kom ekkert fram sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Kviku eignastýringar hf. í síma 522-0010.
Attachment